Færsluflokkur: Vefurinn

Hættur á blog.is og farinn á the.guru.is

Þeir sem vilja fylgjast með mér þar eru boðnir velkomnir. Þó er engu lofað með örara blogg en hugmyndin er að nýta skáldskapargyðjuna meira. Annars bendi ég fólki á RSS þjónusu Mikka vefs (http://mikkivefur.is/rss/) þar sem hægt er að búa sér til sinn eiginn blogglista yfir þau blogg sem maður vill fylgjast með. Einstaklega þægilegt og þjált. Farvel, bloggheimur Moggans.

Einar og auglýsingin...

EinarOgAuglýsingin

" Ekki stendur til að selja auglýsingapláss inni á bloggsíðunum sjálfum."

 

Ég bar  eftirfarandi fyrirspurn upp á kerfisblogginu en hef enn ekki fengið svar þrátt fyrir að annar aðili hafi beðið um svar fyrir mína hönd. Greinilegt að það er þöggun í gangi á óþægilegum spurningum.

*****  FYRIRSPURN HEFST  *****

" Ekki stendur til að selja auglýsingapláss inni á bloggsíðunum sjálfum."

Bíddu við, er bloggið mitt bara á hluta af síðunni sem sést í vafranum? Þannig að allur ramminn utan um, þar sem ég GET ekki skrifað, er auglýsingapláss eða pláss sem ég ræð ekki yfir?

Hvaða bull er þetta?

Vísar ekki vefslóðin (í mínu tilfelli http://guru.blog.is) á MITT blogg? Eða er slóðin sameiginleg eign mín og auglýsingamiðilsins mbl.is/blog.is? Þá er bloggið ekki mitt lengur er það?

*****  FYRIRSPURN LÝKUR  *****

Þar sem þeir eru svo að "laga" það í kerfinu hjá sér að hægt sé að stilla þemað þannig að maður fái enga auglýsingu þá er ég alvarlega að íhuga tvennt. Annars vegar að færa mig af blog.is og hins vegar að hætta að lesa blogg þar vegna auglýsinganna. Sem lesandi veit ég ekki hvort viðkomandi bloggari er með auglýsingu eða ekki fyrirfram og nenni ekki að eltast við að lesa bara þá sem borga fyrir auglýsingaleysið.

Þar sem ég er ekki mikið lesinn hér (enda nokk sama um það svo sem) þá er væntanlega lítil eftirsjá í mér en ég vona að ég nái að vekja einhverja til umhugsunar um þessi mál.


Engar auglýsingar lengur! Þökk sé Fjasaranum.

Brjánn Guðmundsson fjasaði um hvernig hægt er að slökkva á auglýsingunum blikkandi til hægri. Þær sjást ekki lengur hjá mér!

Þetta eru leiðbeiningarnar hans:

"Farið í stillingar->útlit->þemapakkar. sækið þemuna ykkar (zip skrá) og afþjappið á disk. í þemanu er ein css skrá, sem er stílsíða fyrir síðuna ykkar. aftast í hana bætið þið línunum:

#system-right-ad { display: none !important; }
#system-right #right-ad { display: none !important; }

búið síðan til nýja zip skrá. gætið Þess að til að kerfið taki við zip-skránni verður hún að hafa sama heiti og þemað (system name í yaml-skránni).

sjálfur breytti ég system name í 'fjas' og vistaði zip-skrána sem fjas.zip.

Einnig má breyta description í yaml-skránni, í eitthvað meira lýsandi, ss. NOVA killer LoL

nú, þegar búið er að breyta css- og yaml skránum, er möppunni sem skrárnar eru í zippað og hún send til baka gegn um sömu síðu og þið sóttuð gamla þemað.

að því loknu þarf að fara í 'Velja þema' síðuna og velja þar nýja þemað. Athugið að description-textinn í yaml-skránni birtist í fellivalmyndinni. Hafið þið t.d. breytt description í 'NOVA killer' mun sá texti birtast sem heiti þemans.

góða skemmtun og gangi ykkur vel. Smile

Lifi byltingin!

Brjánn Guðjónsson"


No Blogg með Nova!

Ég ætla að taka mér amk viku frí frá bloggskrifum (ekki það að maður hafi verið svo duglegur svo sem undanfarið) og blogglestri á mbl.is vegna auglýsingarinnar frá Nova (og auglýsingarinnar yfirhöfuð).

Mæli með því að aðrir geri slíkt hið sama til að sýna óánægju sína í verki.

NO BLOGG MEÐ NOVA !!!


Gefið almennilega jólagjöf...

The Hunger Site
Smellið á myndina til að gefa ókeypis mat!

Gleðileg jól.


Ráð handa ljósmyndaóðum ferðalöngum

 

Á ferðalögum er iðulega mikil mannmergð þar sem maður er og ekki síst þar sem maður vill helst mynda minningar.

Útlenskir túrhestar leika þá jafnvel þann leik að skemma fyrir manni myndatökurnar með því að þvælast fyrir svo þeir einir geti tekið flottari mynd (og þá mögulega selt hana á ebay fyrir offjár). 

Það er um að gera að láta krók koma á móti bragði og því mælir Gúrúinn með þessum túrhestafjarlægjara


Ég hreinlega verð að benda á þessa snilldarfærslu

Gísli Ásgeirsson ritar um einn vinsælasta Moggabloggarann.

Ég hef lengi hugsað á þennan hátt en hefði aldrei ekki getað komið þessu svona snilldarlega frá mér.


Hvers vegna er ekki bloggtengill við sumar fréttir á mbl.is?

Ég hef tekið eftir því undanfarið að sumar fréttir á mbl.is er ekki hægt að blogga við. Er þetta einhver stefnubreyting hjá mbl.is? Þeir hafa að vísu tekið út bloggtengilinn við slysafréttir (eftir mikið ámæli fyrr í sumar) en ég vissi ekki að það væri ákveðin ritskoðun í gangi um hvaða aðrar fréttir mætti ekki blogga um. 

Ein þeirra er niðurstaða  DNA-rannsóknar sem bendir sterklega til að Lúðvík sé ekki Gizurarson heldur Hermannsson Jónassonar, fyrrv. forsætisráðherra. Gott og vel, bloggar mbl gætu einhverjir bloggað ógætilega um það og kannski á særandi hátt fyrir aðstandendur. En svo er ekki um tækni- og vísindafréttina um "neindina" risastóru sem fannst nýverið. Hvers vegna má ekki blogga um hana?

Kannski maður skutli pósti á moggabloggmenn og fái úr því skorið hvaða mælistiku er beitt að þessa ritskoðun. 


Meira dónó: margra daga orgíur!

Perrinn ég skemmti mér konunglega yfir allítarlegum lýsingum á margra daga kynlífssvallveislum. Ú JE!jkon368l

Næsta síða »

Um bloggið

Gúrúinn lætur ljós sitt skína í myrkri annarra...

Höfundur

Gúrúinn
Gúrúinn

Tölvuvesenisti, skáld, pistlahöfundur, eiginmaður, faðir, vinur svo fátt eitt sé nefnt.

Vandamálið við almenna skynsemi er að hún er alls ekki almenn!

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Í samhengi
  • Í samhengi
  • Hvers vegna borðar fólkið ekki kökur?
  • EinarOgAuglýsingin
  • EinarOgAuglýsingin

Nota Bene

Ýmislegt

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband