Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Hættur á blog.is og farinn á the.guru.is

Þeir sem vilja fylgjast með mér þar eru boðnir velkomnir. Þó er engu lofað með örara blogg en hugmyndin er að nýta skáldskapargyðjuna meira. Annars bendi ég fólki á RSS þjónusu Mikka vefs (http://mikkivefur.is/rss/) þar sem hægt er að búa sér til sinn eiginn blogglista yfir þau blogg sem maður vill fylgjast með. Einstaklega þægilegt og þjált. Farvel, bloggheimur Moggans.

Eina leiðin til að reka óráðamenn þar sem þeir hafa ekki siðgæði að víkja sjálfir

Kosningar er eina leiðin fyrir okkur til að reka þennan rumpulýð sem á að vinna fyrir okkur en ekki ota bara sínum tota. Þeir fá þokkalegt fyrir að hafa ákveðna ábyrgð en þurfa þá jafnframt að axla ábyrgðina.

Burtséð frá því hvar við erum í pólitík, þá er ljóst að ráðamenn hafa ekki staðið sig, eftirlitskerfin sem ráðamenn bera ábyrgð á hafa ekki staðið sig og þeir flotið steinsofandi í roti að feigðarósinum sem við erum stödd við núna.

Burt með þá! Kjósum upp á nýtt!


mbl.is Vill að kosið verði í vor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Arnþór Helgason er skarpskyggn!

Ég varð bara að benda á þessa færslu hans varðandi launamun ljósmæðra og dýralækna.

 

Hvað útskýrir launamuninn? Kíkið á færsluna hans.


" Ekki stendur til að selja auglýsingapláss inni á bloggsíðunum sjálfum."

 

Ég bar  eftirfarandi fyrirspurn upp á kerfisblogginu en hef enn ekki fengið svar þrátt fyrir að annar aðili hafi beðið um svar fyrir mína hönd. Greinilegt að það er þöggun í gangi á óþægilegum spurningum.

*****  FYRIRSPURN HEFST  *****

" Ekki stendur til að selja auglýsingapláss inni á bloggsíðunum sjálfum."

Bíddu við, er bloggið mitt bara á hluta af síðunni sem sést í vafranum? Þannig að allur ramminn utan um, þar sem ég GET ekki skrifað, er auglýsingapláss eða pláss sem ég ræð ekki yfir?

Hvaða bull er þetta?

Vísar ekki vefslóðin (í mínu tilfelli http://guru.blog.is) á MITT blogg? Eða er slóðin sameiginleg eign mín og auglýsingamiðilsins mbl.is/blog.is? Þá er bloggið ekki mitt lengur er það?

*****  FYRIRSPURN LÝKUR  *****

Þar sem þeir eru svo að "laga" það í kerfinu hjá sér að hægt sé að stilla þemað þannig að maður fái enga auglýsingu þá er ég alvarlega að íhuga tvennt. Annars vegar að færa mig af blog.is og hins vegar að hætta að lesa blogg þar vegna auglýsinganna. Sem lesandi veit ég ekki hvort viðkomandi bloggari er með auglýsingu eða ekki fyrirfram og nenni ekki að eltast við að lesa bara þá sem borga fyrir auglýsingaleysið.

Þar sem ég er ekki mikið lesinn hér (enda nokk sama um það svo sem) þá er væntanlega lítil eftirsjá í mér en ég vona að ég nái að vekja einhverja til umhugsunar um þessi mál.


Gefið almennilega jólagjöf...

The Hunger Site
Smellið á myndina til að gefa ókeypis mat!

Gleðileg jól.


Perrinn leikur ráðherrann í Mæðst í mörgu (The Thick of It) sem er sýnt á RÚV á miðvikukvöldum kl 21:15

300px-The_Thick_of_It_title_carden sú sería er einmitt gerð 2005. Kannski var perrinn að undirbúa sig undir það hlutverk? Hvað um það, þá er hann ekki með í aukaþáttunum sem sýndir voru á þessu ári.

 

Á RÚV að hætta sýningum á þáttaröðinni? Hvað finnst lesendum?


mbl.is Kunnur breskur leikari dæmdur fyrir að hafa barnaklám undir höndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er listinn yfir 10 menguðustu borgir og bæi of langur fyrir þessa frétt?

 

Má ekki setja tengil sem leiðir mann í burt frá moggablogginu? Eða hvers vegna er ekki settur tengill á síðuna þar sem listann er að finna fyrst ekki er pláss fyrir hann í fréttinni sjálfri?

linfen

 

Fyrir áhugasama þá er listinn þessi

Sumgayit, Azerbaijan
Linfen, China
Tianying, China
Sukinda, India
Vapi, India
La Oroya, Peru
Dzerzhinsk, Russia
Norilsk, Russia
Chernobyl, Ukraine
Kabwe, Zambia

og þetta er  tengillinn á BBC fréttina. Síðan hefur m.a. Time fjallað um þetta og mun ýtarlegar.

 

 


mbl.is Tíu menguðustu borgir og bæir á jörðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

erlent vinnuafl (senryu)

erlent vinnuafl

bjargar málum enn á ný

samverjar í raun 


mbl.is Útlendingar bjarga málum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Gúrúinn lætur ljós sitt skína í myrkri annarra...

Höfundur

Gúrúinn
Gúrúinn

Tölvuvesenisti, skáld, pistlahöfundur, eiginmaður, faðir, vinur svo fátt eitt sé nefnt.

Vandamálið við almenna skynsemi er að hún er alls ekki almenn!

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Í samhengi
  • Í samhengi
  • Hvers vegna borðar fólkið ekki kökur?
  • EinarOgAuglýsingin
  • EinarOgAuglýsingin

Nota Bene

Ýmislegt

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 37667

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband