Færsluflokkur: tanka

Ljóðaskrif á íslensku og ensku

Ég hef verið undanfarið að dunda mér við að skrifa haiku og önnur ljóð nær eingöngu á ensku. Það opnaðist fyrir mér heimur ljóðaunnenda á netinu og ég gekk inn í samfélag þar sem heitir pathetic.org.

Fyrst skrifaði ég eingöngu haiku en hef hent inn öðrum ljóðum svona inn á milli eftir því sem skáldskapargyðjan hefur blásið mér í brjóst.

Haiku er ævafornt japanskt ljóðform, 3 línur að lengd og reynir að fanga andartakið. Haiku vísar alltaf til einhverrar af árstíðunum fjórum. Haiku er 5/7/5, það er að segja að fyrsta og þriðja línan eru 5 "on" að lengd en önnur lína 7.  Yfirleitt er einnig einskonar hik eða "brake" í haiku og þá í enda fyrstu eða annarar línu.

Ef viðfangsefnið er mannlegur breyskleiki og gamansemi þá kallast ljóðformið senryu en er að öðru leyti eins nema hvað það vantar árstíðartilvísunina og hikið.´

Einnig er til tanka (sem er fimm lína ljóð, 5/7/5/7/7, sem ég hef reynt örlítið við.

Ég hef verið hreinlínumaður í haiku skrifum, aðhyllst gamla skólann sem segir að japanska "on" sem ræður lengd línanna samsvari vesturlensku atkvæði. Það er ekki hægt að leggja "on" að jöfnu við atkvæði þannig að nýrri stefna í vesturlenskri haiku hefur verið að hafa haiku þrjár línur að lengd og ekki hafa meira en 17 atkvæði í ljóðinu sjálfu en skipting atkvæðanna sé orðin frjálsari.

Ég hef rétt verið að prófa þessa nýju haiku stefnu á ensku og líkar vel. Mig hefur lengi langað að gera veg haiku hærri á Íslandi en einhverra hluta vegna spreyta fá skáld sig á því ljóðformi. Ef einhver hefur áhuga á að vita meira um haiku, senryu eða tanka þá er þeim sama velkomið að hafa samband.

Ég bloggaði á haiku-formi í u.þ.b. ár og hér má sjá afraksturinn. Þeir sem nenna að lesa sig í gegn um þetta fá punkt hjá mér.


hann seldi skrúfur onlæn (tanka)

hann seldi skrúfur

onlæn á undirverði

á tíkall stykkið

verð varð honum að falli

þýskum trésmíðakalli 

 


mbl.is Stal milljón skrúfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

This just in... (eða this Justin?)

Britney vill biðil

grátbiður hún Justin sinn

að koma sér með á fund

til að þurrka kinn og lund


mbl.is Britney vill fá Justin Timberlake í heimsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flóir um fætur hlandið

"Þungt er í mér þvag

ég þarf að kasta vatni

vil fá pissustopp"

Rútubílstjóri neitar

en niður þvagið leitar

 

"Ef míga ei má

ég í Hveragerðiskló

hverfa mér kostir"

kvað ungur piltur í spreng

og tók út sinn litla dreng

 

"Hér brestur mig mál

og míg nú að svo stöddu

á rútuganginn"

Flóir um fætur hlandið

á ferð um suðurlandið.


mbl.is Pissaði á rútugólfið þegar bílstjórinn neitaði að stoppa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grískur munkur og baðsölt

 Eggerti barst bréf

sem innihélt undarleg 

hvít ókunn efni

Grískum munki Eggert fannst

þurfa afslöppun


mbl.is Eggerti barst dularfullt bréf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vaskur stjóri verslunar

Söluskálinn á

Egilsstöðum lækkar ei

verð á matvælum

Vaskur stjóri verslunar

varast að breyta verði


mbl.is Söluskáli KHB lækkaði ekki verð í morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Anna átti barn

Anna átti barn

með ansi mörgum mönnum

ungum sem öldnum

sem allir girntust Önnu

dánarbús hennar vegna


mbl.is Lífvörðurinn kann að vera barnsfaðir Önnu Nicole
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gögn eiga til að eyðast

 Jón Ásgeir telur

bókhald Baugs rétt og dagsatt

en skrítið er að

tölvur eru skrípatól

gögn eiga til að eyðast


mbl.is Jón Ásgeir yfirheyrður næstu þrjá daga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Gúrúinn lætur ljós sitt skína í myrkri annarra...

Höfundur

Gúrúinn
Gúrúinn

Tölvuvesenisti, skáld, pistlahöfundur, eiginmaður, faðir, vinur svo fátt eitt sé nefnt.

Vandamálið við almenna skynsemi er að hún er alls ekki almenn!

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Í samhengi
  • Í samhengi
  • Hvers vegna borðar fólkið ekki kökur?
  • EinarOgAuglýsingin
  • EinarOgAuglýsingin

Nota Bene

Ýmislegt

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband