Færsluflokkur: Bloggar

Sárt grátið við grátmúrinn

Papparassar grétu sárt við grátmúrinn undan lífvörðum Lenna. Svo grétu téðir lífverðir undan handtöku ísrelsku löggunnar (hvernig haldiði að þeir hafi tekið á ótíndum lífvörðum þegar þeir fara illa með forsetafrúnna okkar). En þar sem hvorki diCaprio eða unnusta létu tár falla á hvarm þótti það ekki myndnæmt.
mbl.is Lífverðir DiCarprios handteknir eftir slagsmál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breiðara rúm leysir vandann!

Ekkert kvínsæsd bedd hjá mér takk. Bara kóngarúm í yfirstærð og við hjónin sofum sem aldrei fyrr án þess að trufla svefn hvors annars. Hentar samt illa á köldum og löngum vetrarnóttum, þá er miðjan lokkandi...
mbl.is Fleiri pör sofa í sitthvoru herberginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

666

666 = sex veldur sex börnum með sex konum

Annars finnst mér merkilegra að hann er 25 ára og sekur um fjár"drátt" (sorrí, gat ekki haldið í mér ;) á 250 þúsundum króna.

Hef reyndar ekki séð myndina Number 23 en þetta er nokkuð í ætt við hana.


mbl.is Á von á sex börnum með sex konum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jónína í Baugshöldum í dag

Nú verður gaman að sjá hvaða hnyttinyrði falla af vörum leikenda í stórdramanu. Ég bíð með sérstakri eftirvæntinu að lesa ummæli Ísbergsins. Hann hefur oftar en ekki bjargað deginum...
mbl.is Bloggsíður Jónínu lagðar fram í réttinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Amir undoes Arabs

Legg til að "hernaðaraðgerðin" verði kölluð þetta fyrst hann er að leita að nafni við hæfi. Annars er ekkert við hæfi annað en að kalla þetta kaldrifjuð dráp.


mbl.is Og hvað á stríðið að heita? Ísraelar leita að nafni á stríðið í Líbanon
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Níðst á útlendingum

"Við höfum rökstuddan grun um að það sé vantalið"

Ekki bara fá þeir lágmarkslaun og stundum ekki það, búa við illan aðbúnað og hírast í kytrum heldur er sparað við þá í vinnuaðbúnaði og -öryggi.

Skamm íslendingar að láta þetta viðgangast!

 


mbl.is Útlendingar þriðjungur fólks í vinnuslysum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ISG enn sætt?

Er ekki jöfnuður og jafnrétti í Samfylkingunni? Er gert upp á milli fólks á grundvelli kynferðis? Eða hvernig stendur á því að ISG situr enn sem formaður á meðan Össur var látinn taka pokann sinn fyrir mun minna prósentufall en ISG hefur valdið/upplifað?

 


mbl.is Samfylkingin með 19,2% fylgi samkvæmt könnun Fréttablaðsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver sló hvern?

Lentu hjónakornin sjálf í átökum við fjölmiðlafólkið eða voru það bara öryggisgæsluliðar þeirra sem börðu samviskusamlega á papparössunum? Kannski það hafi verið leyniþjónustumenn frá Halló sem voru að vernda eign sína?

  • Hvers vegna er fréttaflutningurinn ekki betri en þetta? Lítið mál að gúgla málið og fá það á hreint.
  • Hvers vegna selur velauðugt fólk myndaréttinn af giftingunni sinni (og rúmlega vikulangri veislu)? Á það ekki nægan pening? Það er ráð að spara kannski bara í brullaupinu sjálfu...

mbl.is Lentu í átökum við fjölmiðlafólk í lok brúðkaups
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Gúrúinn lætur ljós sitt skína í myrkri annarra...

Höfundur

Gúrúinn
Gúrúinn

Tölvuvesenisti, skáld, pistlahöfundur, eiginmaður, faðir, vinur svo fátt eitt sé nefnt.

Vandamálið við almenna skynsemi er að hún er alls ekki almenn!

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Í samhengi
  • Í samhengi
  • Hvers vegna borðar fólkið ekki kökur?
  • EinarOgAuglýsingin
  • EinarOgAuglýsingin

Nota Bene

Ýmislegt

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.9.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 38580

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband