Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
1.3.2007 | 17:25
Vaskur stjóri verslunar
Söluskálinn á
Egilsstöðum lækkar ei
verð á matvælum
Vaskur stjóri verslunar
varast að breyta verði
Söluskáli KHB lækkaði ekki verð í morgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.3.2007 | 08:40
Heiðmerkurljóð
Þættinum barst tölvubréf:
Gunnar hefur holdin best
hulin vænni puru
Sagður elska ýtur mest
en ekki greni og furu
Kópavogi ríkur réð
með ráðslag allt til sóma
Undirhöku hnellna með
og heldur digurróma
Reykjavík er ríki eitt
sem ræflar einir byggja
og gera flestum lífið leitt
og landsmenn aðra hryggja
Dólgar réðu veitu vatns-
og vildu á henni græða
Þá mælti Gunnar mikið hvass:
"Vér munum eigi blæða"
Sendi ýtur allar skjótt
- ítem gröfur vænar -
upp í Heiðmörk undir nótt
og atti á hlíðar grænar
Það frétti peysu- lopa- lið
og lagsmenn kommónista
og upphóf skjótt að sínum sið
að senda kærulista
Engra griða Gunnar bað
- geystist skjótt í slaginn -
féndur alla í kútinn kvað
í Kastljósi um daginn
Skelfir Gunnar skógarmenn
sem skæður refsilogi
Sílspikaður situr enn
í sæmd í Kópavogi
27.2.2007 | 11:36
Out of sight...
Varnarmálaráðuneyti Breta hindraði störf myndlistarmanns | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.2.2007 | 18:03
Gott að skynsemin hefur ekki yfirgefið þjóðina alveg
Traust stjórnarfar er forsenda þess að lýðræði fái þrifist. Til þess að svo geti verið verður að virða reglur um jafnræði líka þegar þær snúa gegn þeim sem stunda iðju og athafnir sem ekki er öllum að skapi, segir í ályktun Heimdellinga vegna málsins.
Gæti ekki sagt þetta betur sjálfur. En þeir hafa örugglega stolið þessu frá Voltaire ...
Heimdallur hvetur stjórnvöld til að hafa í heiðri hefðir réttarríkisins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.2.2007 | 16:35
Óháð eða óviss?
Björk Vilhelmsdóttir gengin í Samfylkinguna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.2.2007 | 09:08
442,4 tóku afstöðu
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.2.2007 | 09:03
Fyrsta ályktun VG er klám!
"...ef banna ætti klám myndi það ekki draga úr kynferðislegri misnotkun, e.t.v. væru meiri líkur á að hið gagnstæða gerðist. Betra væri að eyða tíma, orku og peningum í eftirfarandi:
1. Rannsaka betur hvernig hægt sé að fyrirbyggja nauðgun og aðra kynferðisglæpi.
2. Búa til betra kynferðislega opinskátt efni, þar sem manngildi eru í hávegum höfð.
3. Vinna að félagslegum og efnahagslegum jöfnuði í þeim löndum þar sem þrælasala, þ.m.t. mansal viðgengst."
Afritað af http://jonaingibjorg.blog.is/blog/jonaingibjorg/entry/129179/
"Órjúfanlegt samhengi ríkir milli kláms, vændis og annars kynferðisofbeldis. Enginn á að þurfa að taka þátt í kynferðislegum athöfnum gegn vilja sínum. Einstaklingur sem starfar í klámiðnaðinum vegna neyðarinnar einnar og/eða gegn vilja sínum er því beittur kynferðisofbeldi. Ljóst er að sú er raunin með stóran hluta þeirra sem starfa í klámiðnaðinum.
Klámvæðingin hefur auk þess ótvíræð neikvæð áhrif á samfélagið og hegðan einstaklinga innan þess. Rannsóknir kynjafræðinga hafa sýnt fram á sterkt samband milli neyslu kláms og ofbeldis gagnvart konum og börnum. Í kjölfar klámvæðingarinnar eru nauðganir orðnar grófari og hópnauðganir alvarlegri, í fullu samræmi við þróun klámvæðingarinnar."
Afritað af http://vg.is/default.asp?news_id=6944
Hér greinir Ingibjörgu Jónu, hjúkrunar- og kynfræðing, á við fyrstu ályktun landsfundar VG.
Ef ég ætti að veðja á hvor hefur rétt fyrir sér, myndi ég ekki vinna mikið því það geta varla verið margir sem veðja á VG í þessu máli. Eru VG virkilega að mæla þessari skoðunarskoðun (sbr. orðið ritskoðun) sem átti sér stað þegar klámráðstefnunni var úthýst bót? Vilja VG skilgreina nánar hver er þeim þóknanlegur sem ferðamaður til landsins? Og hvað á þá að gera við hina óþóknanlegu? Setja þá á sama stall og Falun Gong liða og tukta þá í barnaskóla í Njarðvíkum þangað til þeir fást til að yfirgefa landið? Ef ekki, hvaða stall þá? Vítisenglastallinn? En þetta fólk gerði ekkert ólöglegt og gerir ekkert ólöglegt í sínu landi. Klámhundarnir lýstu því meira að segja yfir, eftir að hótelið var svo óforskammað að heimta slíka yfirlýsingu frá þeim, að þau hyggðust ekki brjóta nein landslög hér á landi. Þá stendur eftir að við vildum ekki fá löghlýðna ferðamenn hingað, ferðamenn eru fjáðari en gengur og gerist. Hverjum hafnar VG næst?
Og setningin: "Einstaklingur sem starfar í klámiðnaðinum vegna neyðarinnar einnar og/eða gegn vilja sínum er því beittur kynferðisofbeldi" finnst mér merkileg. Gildir það bara um klámiðnaðinn að einstaklingur sem starfar þar neyðarinnar vegna er beittur kynferðisofbeldi? Látum kynlífshlutann liggja kyrran og yfirfærum þetta á önnur störf. Sá sem fer að vinna á McDonalds vegna þess að hann fær enga aðra vinnu, sem sagt starfar þar neyðarinnar vegna, er hann þá beittur ofbeldi? Sem sömu röksemdafærslu kemst ég að eftirfarandi: þegar ég vann í Bæjarútgerðinni á sínum tíma þá var ég beittur ofbeldi.
Hvar varst þú beitt/ur ofbeldi?
Fylgi VG og Samfylkingar mælist álíka mikið í nýrri könnun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.2.2007 | 08:12
Feður sem eru plagaðar af þreytu, streitu og samviskubiti eru það sem börnin okkar þurfa
"Mæður sem eru plagaðar af þreytu, streitu og samviskubiti eru ekki það sem börnin okkar þurfa"
"Loks lýsti Samfylkingin yfir skýrum pólitískum vilja til að vinna að fullu jafnrétti milli karla og kvenna."
segir Ingibjörg Sólrún. Gott og vel en hvað um feðurna? Þurfa börnin feður sem eru plagaðir af þreytu, streitu og samviskubiti? Nema hún haldi að við höfum ekki samviskubit yfir að geta ekki sinnt börnunum okkar?
Og hvers vegna á þetta að gerast "að loknum kosningum"? Er ekki hægt að vinna í þessu þótt flokkurinn sé í stjórnarandstöðu? Hvað með samband Sf við verkalýðsfélögin og atvinnurekendur, er ekki hægt að sinna þessu þar?
Þegar mikið er spurt... (svo maður vitni frjálslega í vinsælan bloggara)
Samfylkingin vill taka upp viðræður um að stytta vinnutíma í áföngum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.2.2007 | 07:46
...og annar á báti
Einn á hjóli hjá VG | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.2.2007 | 07:42
Haga sér ekki endilega manna best
Þetta er frekar mismvísandi fyrirsögn hjá mbl. Þótt það séu fáir fangelsaðir þá þýðir það ekki að þeir brjóti ekki af sér. Hér eru t.d. barnaníðingar og aðrir ógjarnan fangelsaðir finnst manni og mætti vera meira um það. Skilorði er mikið beitt amk hér og mér þykir ólíklegt að það sé minna um það í Færeyjum þar sem menn þekkjast enn betur en hér. Þótt færri séu bak við rimlana þýðir það ekki að þeir hagi sér betur.
Þrátt fyrir þessa ábendingu þá skal tekið fram að mér er ekki illa við Færeyinga, þvert á móti, þeir sem ég hef kynnst hafa allir verið einstök gæðablóð og sómamenn. Ég vona því að þessi færsla sendi ekki færeysku mafíuna á eftir mér...
Færeyingar haga sér manna best | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Gúrúinn lætur ljós sitt skína í myrkri annarra...
Nýjustu færslur
- Hættur á blog.is og farinn á the.guru.is
- Davíð útilokar ekki endurkomu í stjórnmálin.
- Hlutir settir í samhengi - með 2000 ára millibili
- Væntanlegur dómsmálaráðherra skilur ekki hvers vegna mótmælen...
- Hagfræði fyrir byrjendur!
- Flott "ekkisvar"
- Eina leiðin til að reka óráðamenn þar sem þeir hafa ekki siðg...
- Bankarnir þrír sameinaðir í einn: Gleðibankann
- "Ekkert að óttast - engin kreppa" segir Geir H. Haarde, nei f...
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- haiku
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- senryu
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- tanka
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Viska
- Vísindi og fræði
Nota Bene
Ýmislegt
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar