Færsluflokkur: Bloggar
26.7.2008 | 10:46
Hvar eru þessar nýju vísbendingar?
Það teljast varla vísbendingar að einhverjir ætli að gera DNA-rannsóknir sem geta mögulega gefið upplýsingar um meinta tilveru yeti eða sjómannsins ógurlega.
Ef þetta ætti að vera frétt þá hefið verið réttara að hafa spurningarmerki í lok fyrirsagnarinnar.
Fyrir þá starfsmenn MBL sem ekki vita, þá lítur það lítur svona út:

![]() |
Nýjar vísbendingar um snjómanninn ógurlega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.7.2008 | 19:16
3 minnisstæðar
Ég var að rifja upp um daginn hvaða hljómplötur væru mér minnisstæðar. Í fljótu bragði voru þær bara þrjár sem ég gat hent festur á.
Fyrsta ber að telja plötuna Diamond Dogs með David Bowie. Þetta var merkilegt nokk fyrsta plata Bowies sem ég hlustaði á. Ég hafði auðvitað heyrt í útvarpinu eitthvað af lögunum hans en ekki komist upp á lag með hann fyrr en við þessa plötuhlustun.
Ég fékk hana að (eilífðar)láni frá Siggu Eysteins, kærustu Kidda bestavinar og æskufélaga míns. Þessi plata fór ekki af fóninum í nokkra mánuði og var nánast spiuð í tætlur. Ég hafði nýlokið við að lesa 1984 (og auðvitað Animal Farm) og hafði verið að velta fyrir mér stjórnmálum þannig að maður fékk hugmyndafræði Orwells beint í æð ásamt vænum skammti af glamrokki og rebelli.
Og ekki spillti coverið fyrir!
Ég var einlægur aðdáandi Bowies fram að Let's Dance plötunni, þá gafst ég upp á honum.
Næsta plata er Dark Side of the Moon með vini mínum, honum Pink Floyd. Kiddi bestivinur lét mig hlusta á hana í nýja steríó plötuspilara stóra bróður síns og þarna heyrði ég víðóm í fyrsta skipti.
Það var magnað að heyra peningahljóðin færast frá hægri til vinstri og aftur til baka fyrir aftan mann. Vá! Ekki skrítið þótt Kiddi vildi endilega deila þessari upplifun með einhverjum. Enda rukum við beint út og náðum í annan gaur til að leyfa að hlusta.
Spurning hvort Hörður hafi vitað af því að krakkastóðið lá í nýju græjunni hans...?
Annars þarf ekkert að lofa Pink Floyd neitt sérstaklega, þeir eru fullfærir um að láta verkin tala. DSoM, Wish You Were Here og Animals eru heimsklassaverk.
Síðasta platan sem ég rifja upp er Music from Penguin Café Orchestra með Penguin Café Orchestra. Ég kynntist henni í geg um Ásgeir vin minn þegar við vorum saman í enskunni í HÍ.
Tónlist PCO er varla hægt að flokka, hún er svona klassísk/rokk/þjóðlaga, minnir á mínimalismann Philip Glass en samt alveg sér á báti.
Ég hélt alltaf að PCO væri jaðarjaðartónlist en rak upp stór augu og eyru þegar ég sá í sjónvarpi Still Life at the Penguin Cafe, ballett í flutningi Royal Ballet þar sem Jeremy Irons hefur flutninginn með því að minnast þess að Íslendingar drápu síðastu geirfugana í Eldey 3. júní 1844. Og svona til að flækja málið þá var þetta í Þýskalandi en sjónvarpsstöðin var frönsk (Arte).
Ballettinn var samt flottur. Hann er reyndar það eina sem ég á ekki með þeim eftir því sem ég best veit. Kaupi hann næst þegar ég er í London.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.5.2008 | 17:33
Ný sjónvarpsstöð?
![]() |
Bankar slaki á kröfum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.4.2008 | 17:45
Fjandinn, þá er enn ein hækkunin hjá olíufélögunum í vændum
Allar hreyfingar á verði, hvort sem er upp eða niður, skila sér í hækkun hjá íslensku olíufélögunum Er ástæða til að ætla að það hafi breyst?
Hvernig væri nú að versla í mánuð við þann sem lækkar fyrst? (Með lækkun á ég við raunverulega lækkun, ekki bara einhverja aurabreytingu.) Svona til að ýta aðeins við samkeppnisanda olíufélaganna...
sem er auðvitað algjört oxymoron.
![]() |
Olíuverð á niðurleið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.4.2008 | 11:44
Telst Atlantsolía ekki með?
Skeljungur, N1 og Olís eru öll olíufélögin en hvað með Atlantsolíu?
Vanda sig, fréttamenn og -miðill!
![]() |
Allir hækka bensínið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.4.2008 | 01:47
Því skrautlegri því betri strætó/Jeepney

![]() |
Slanga í strætó |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.4.2008 | 01:37
6% íbúða með þennan galla
Það finnst mér hátt hlutfall.
Auk þess hjó ég eftir þvi að það er talað um u.þ.b. 500 (gætu verið 401 eða 451) á móti rúmlega 30 (gætu verið 39) íbúðir. Það skekkir niðurstöðuna nokkuð.
![]() |
Segja sveppinn ekki hættulegan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.4.2008 | 01:33
Ég á útlenska konu
og hún er katólsk. Ég þurfti ekki að gerast katólskur en þurfti að samþykkja að börnin okkar fái katólsk uppeldi. Er það frétt???
Ó já ég er líka háskólamenntaður... Skiptir það máli?
Kommon, gúrkufréttamenn! Þetta er of lame
![]() |
Giftist inn í indverska fjölskyldu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.4.2008 | 01:30
Feitar konur fá minna SEX!!!
Er ekki hægt að koma í veg fyrir offitufaraldurinn með því að linka þær tvær fréttir saman???
(Finn samt ekki fréttina um að feitar konur fá ekki eins oft á broddinn eins og aðrar...Er ritskoðun í gangi???)
![]() |
Offitufaraldur á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Gúrúinn lætur ljós sitt skína í myrkri annarra...
Nýjustu færslur
- Hættur á blog.is og farinn á the.guru.is
- Davíð útilokar ekki endurkomu í stjórnmálin.
- Hlutir settir í samhengi - með 2000 ára millibili
- Væntanlegur dómsmálaráðherra skilur ekki hvers vegna mótmælen...
- Hagfræði fyrir byrjendur!
- Flott "ekkisvar"
- Eina leiðin til að reka óráðamenn þar sem þeir hafa ekki siðg...
- Bankarnir þrír sameinaðir í einn: Gleðibankann
- "Ekkert að óttast - engin kreppa" segir Geir H. Haarde, nei f...
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- haiku
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- senryu
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- tanka
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Viska
- Vísindi og fræði
Nota Bene
Ýmislegt
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.3.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 38123
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar