Þjóðverjar fylgja reglum - kostir og gallar

Mér er minnisstætt þegar ég fékk þýskt ökuskírteini og stofnanaverjinn vildi taka íslenska ökuskírteinið af mér. Ég neitaði að sjálfsögðu og benti þeim á að þetta væri eign íslenska ríkisins en ekki mín prívat eign. Þeim þótti lítið til þeirra raka koma og stóðu fastir á sínu. Allt kom fyrir ekki þótt ég benti þeim á að það væru fleiri íslendingar í þessari sömu borg (og zufällig var um Freiburg að ræða).

Það var ekki fyrr en að ég spurði þá hvað þyrfti til að fá að halda íslenska ökuskírteininu mínu og mér tjáð að slíkt væri bara gert í undantekningartilfellum. Ég spurði þá hvað þyrfti til að fá undanþágu frá reglunni og mér var sagt að það þyrfti að biðja um það sérstaklega. Ég greip tækifærið og spurði beint á móti hvort ekki væri hægt að veita mér undanþágu. Þvílíkar vöflur hef ég aldrei séð á nokkru fólki. Að íslendingurinn skyldi voga sér að biðja um undanþágu frá reglunum! En þeim kom engin ástæða í hug að neita mér ekki um undanþágu fyrst ég bað um hana og ökuskírteininu hélt ég.

Maður þarf bara að kunna á reglurnar til að geta farið á bak við þær og smeygt sér á milli línanna.


mbl.is Reglur eru reglur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gúrúinn lætur ljós sitt skína í myrkri annarra...

Höfundur

Gúrúinn
Gúrúinn

Tölvuvesenisti, skáld, pistlahöfundur, eiginmaður, faðir, vinur svo fátt eitt sé nefnt.

Vandamálið við almenna skynsemi er að hún er alls ekki almenn!

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Í samhengi
  • Í samhengi
  • Hvers vegna borðar fólkið ekki kökur?
  • EinarOgAuglýsingin
  • EinarOgAuglýsingin

Nota Bene

Ýmislegt

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband