Færsluflokkur: Ljóð

Heiðmerkurljóð

Þættinum barst tölvubréf:

Gunnar hefur holdin best
hulin vænni puru

Sagður elska ýtur mest

en ekki greni og furu


Kópavogi ríkur réð
með ráðslag allt til sóma

Undirhöku hnellna með

og heldur digurróma

 

Reykjavík er ríki eitt
sem ræflar einir byggja

og gera flestum lífið leitt

og landsmenn aðra hryggja

 

Dólgar réðu veitu vatns-
og vildu á henni græða

Þá mælti Gunnar mikið hvass:

"Vér munum eigi blæða"

 

Sendi ýtur allar skjótt
- ítem gröfur vænar -

upp í Heiðmörk undir nótt

og atti á hlíðar grænar

 

Það frétti peysu- lopa- lið
og lagsmenn kommónista

og upphóf skjótt að sínum sið

að senda kærulista

 

Engra griða Gunnar bað
- geystist skjótt í slaginn -

féndur alla í kútinn kvað

í Kastljósi um daginn

 

Skelfir Gunnar skógarmenn
sem skæður refsilogi

Sílspikaður situr enn

í sæmd í Kópavogi


Anna átti barn

Anna átti barn

með ansi mörgum mönnum

ungum sem öldnum

sem allir girntust Önnu

dánarbús hennar vegna


mbl.is Lífvörðurinn kann að vera barnsfaðir Önnu Nicole
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gögn eiga til að eyðast

 Jón Ásgeir telur

bókhald Baugs rétt og dagsatt

en skrítið er að

tölvur eru skrípatól

gögn eiga til að eyðast


mbl.is Jón Ásgeir yfirheyrður næstu þrjá daga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Um bloggið

Gúrúinn lætur ljós sitt skína í myrkri annarra...

Höfundur

Gúrúinn
Gúrúinn

Tölvuvesenisti, skáld, pistlahöfundur, eiginmaður, faðir, vinur svo fátt eitt sé nefnt.

Vandamálið við almenna skynsemi er að hún er alls ekki almenn!

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Í samhengi
  • Í samhengi
  • Hvers vegna borðar fólkið ekki kökur?
  • EinarOgAuglýsingin
  • EinarOgAuglýsingin

Nota Bene

Ýmislegt

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 37744

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband